Jólaskemmtanir – 1. – 4. bekkur

Dagskráin síðustu tvo dagana
Miðvikudaginn 19. desember verður engin kennsla að morgni hjá 1. – 4. bekk en nemendur mæta á jólaskemmtanir þennan dag.
Foreldrar og forráðamenn eru velkomnir á jólaskemmtanirnar, svo og yngri systkini. Þess er vænst að foreldrar gangi með börnum sínum kringum jólatréð. Foreldrar geta geymt yfirhafnir hjá stofum barna sinna. Nemendur mæta í sínar heimastofur og fara þaðan í röð ásamt foreldrum upp í hátíðarsal skólans.
Foreldrar eru beðnir um að koma með góðgæti á sameiginlegt hlaðborð og drykki fyrir nemendur. Vinsamlega munið að skólinn er hnetulaus. Skólinn býður upp á kaffi. Foreldrar eru beðnir um að aðstoða við frágang í stofu að jólaskemmtun lokinni.
Miðvikudaginn 19. desember kl: 12:00
1. bekkur hópur 1 stofa 4 og 5
2.bekkur hópur 1 stofa 8 og 9
3.bekkur hópur 1 stofa 1 og 2
4. bekkur hópur 1 stofa 18 og 19
Umsjónarkennarar senda nafnalista fyrir hópana.
Miðvikudaginn 19. desember kl:14:00
1.bekkur hópur 2 stofa 4 og 5
2.bekkur hópur 2 stofa 8 og 9
3.bekkur hópur 2 stofa 1 og 2
4.bekkur Mars 2 stofa 18 og19
Umsjónarkennarar senda nafnalista fyrir hópana.
Miðvikudaginn 19. desember kl: 16:00
1.bekkur hópur 3 stofa 4 og 5
2.bekkur hópur 3 stofa 8 og 9
3.bekkur hópur 3 stofa 1 og 2
4. bekkur hópur 3 stofa 18 og 19
Umsjónarkennarar senda nafnalista fyrir hópana. Vinsamlega mætið tímanlega. Jólaskemmtanir hefjast á auglýstum tíma.
Fimmtudagurinn 20.desember er síðasti kennsludagur fyrir jól og verður kennsla hjá umsjónarkennurum frá 8:40 – 11:20,engar sérgreinar þennan dag. Morgunhressing má vera að eigin vali þennan dag. Þeir nemendur sem fara í frístundaheimilið eftir hádegi borða hádegismat í skólanum.
Kennsla hefst að nýju föstudaginn 4. janúar 2019 samkvæmt stundaskrá.
Starfsfólk Breiðagerðisskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.