Viðburðadagatal

« < September 2010 > »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Komandi viðburðir

mán sep 13 @08:00fh - 05:00eh
Umhverfisdagur

Könnun

Ferðaðist þú innanlands í sumar?
 

Teljari

Fjöldi heimsókna : 90186
Hausthátíð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 08 september 2010 14:23

Hausthátíð Breiðagerðisskóla

fimmtudaginn 9. september 2010 kl. 17 - 19.

Meðal annars verður eftirfarandi í boði:

  • Glæsileg kaffisala í salnum í umsjá 7. bekkjar (einungis reiðufé, engin kort)
  • Grillaðar pylsur (einungis reiðufé, engin kort)
  • Andlitsmálun, spákonur, veltibíllinn, blöðrupílukast, leiktæki, limbó og fleira á lóð.
  • Reiðhjólaþrautabraut á norðurlóð skólans.
  • Reipitog kl. 18:00 - Foreldrar togast á við börn.
  • Skólahljómsveit Austurbæjar leikur nokkur lög.
  • Karatedeild Víkings kynnir starf sitt kl. 17:30 í íþróttasalnum, sjáið og prófið!
  • Sokka- og vettlingasala á vegum nágranna okkar í Hæðargarði 31, í anddyri skólans.
  • Hægt verður að máta og panta Henson íþróttapeysur og buxur með merki skólans í anddyri. Peysurnar kosta kr. 4000 og buxurnar kr. 2000. Athugið að greiða þarf við pöntun (ekki hægt að greiða með kortum).

Við endum svo hátíðina með hinni sívinsælu vatnsrennibraut á stóra hólnum. Munið að taka með ykkur handklæði og aukaföt.

Foreldrar, mætum með börnunum okkar og tökum þátt í góðri skemmtun. Okkur þætti vænt um aðstoð frá foreldrum t.d. veltibíllinn, þrautabraut og pílukast.

Munum líka að börnin eru á ábyrgð foreldra sinna.

Með hlýjum haustkveðjum frá stjórn Foreldrafélagsins.

 
Mataráskrift Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 23 ágúst 2010 13:37

Á þessu skólaári verður tekið við skráningum í mataráskrift í grunnskólum Reykjavíkur í gegnum Rafræna Reykjavík.

Mánaðarlegt gjald fyrir hádegismat í skólamötuneytum borgarinnar er 5000 kr. og verður innheimt níu sinnum á skólaári, frá september til maíloka, í jöfnum greiðslum.Foreldrar geta valið að greiða með greiðsluseðli eða kreditkorti.

Vakin er athygli á því að innheimt er eftir á, t.d. er reikningur vegna áskriftar í september gefin út 20. þess mánaðar með gjalddaga þann 1. októberog eindaga 1. nóvember.

Ef mataráskrift er hætt þarf að segja henni upp í Rafrænni Reykjavík og tekur hún þá gildi frá og með næstu mánaðamótum.

 
Skólasetning 23. ágúst Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 18 ágúst 2010 13:43

Nemendur í 2. - 7. bekk mæti í hátíðarsal skólans mánudaginn 23. ágúst sem hér segir:

2. bekkur . . . . . . . kl.   9.00 

3. bekkur . . . . . . . kl.   9.30 

4. bekkur . . . . . . . kl. 10.30 

5. bekkur . . . . . . . kl. 11.00

6. bekkur . . . . . . . kl. 11.30

7. bekkur . . . . . . . kl. 12.00

 

Nemendur í 1. bekk og foreldrar/forráðamenn þeirra verða boðaðir bréflega í viðtal við umsjónarkennara. Viðtölin verða dagana 20. 23. og 24. ágúst.  Kennsla nemenda í 1. bekk hefst samkvæmt stundaskrá, miðvikudaginn 25. ágúst.

Næsta skólaár hefst kennsla í 1.-7.bekk, kl. 8:35. Skóladegi hjá nemendum í 1.-4.bekk lýkur kl. 13:45 en hjá nemendum í 5.-7.bekk kl. 14.25-15:05.

Innkaupalistar eru á heimasíðu skólans.

Óskilamunir

Mikið af óskilamunum hefur safnast fyrir í skólanum. Búið er að flokka eigur barnanna  og hefur öllum óskilamunum verið komið fyrir í opnu rými í vestur álmu skólans. Foreldrar/forráðamenn eru vinsamlega beðnir um að skoða hvort þar leynist eitthvað sem hefur týnst. Föstudaginn 20. ágúst og mánudaginn 23. ágúst liggja óskilamunir frammi.  

Þann 24.ágúst verður farið með alla óskilamuni til Rauða kross Íslands.

 
Sumarfrí Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 29 júní 2010 13:49

Þökkum nemendum og foreldrum fyrir liðinn vetur. Skólinn verður lokaður frá og með miðvikudeginum 30. júní og opnar aftur þriðjudaginn 10. ágúst. Skóladagatal fyrir veturinn 2010 - 2011 er undir krækjunni skóladagatal.

Skólasetning verður mánudaginn 23. ágúst 2010.

Nemendur í 2. - 7. bekk mæti í hátíðarsal skólans sem hér segir:

2. bekkur..... kl. 9:00
3. bekkur..... kl. 9:30
4. bekkur..... kl. 10:30
5. bekkur..... kl. 11:00
6. bekkur..... kl. 11:30
7. bekkur..... kl. 12:00

Nemendur í 1. bekk og foreldrar/forráðamenn þeirra verða boðaðir bréflega í viðtal við umjónarkennara. Viðtölin verða dagana 20., 23. og 24. ágúst. Kennsla nemenda í 1. bekk hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 25. ágúst.

Næsta skólaár hefst kennsla í 1. - 7. bekk kl. 8:35.

Innkaupalistar verða settir inn á heimasíðuna miðvikudaginn 18. ágúst.

Njótið sumarsins!

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 37