| Eineltisáætlun |
|
|
|
| mánudagur, 30 mars 2009 14:49 |
|
Breiðagerðisskóli er þátttakandi í Olweusarverkefninu gegn einelti, sem er samstarfsverkefni menntamálaráðuneytisins, Samband íslenskra sveitafélaga, Kennarasambands Íslands og Heimilis og skóla. Olweusaráætlunin er kennd við Dan Olweus, sálfræðing og prófessor við háskólann í Bergen. Áætlunin byggir á áralöngum og viðamiklum rannsóknum á einelti í Svíþjóð og Noregi undir stjórn Dan Olweusar. Áætlunin hefur verið prófuð við marga skóla, m.a. í Bandaríkjunum þar sem hún var valin ein af tíu bestu af 400 slíkum áætlunum.
Skilgreining Olweusar á einelti
Breiðagerðisskóli innleiddi Olweusaráætlunina í skólann á árunum 2002 - 2004. Skólinn er virkur þátttakandi í verkefninu og notar aðferðafræði Olweusar við úrlausn eineltismála og í forvörnum gegn einelti. Verkefnastjóri Olweusaráætluninnar er Magnea Jóhannsdóttir, námráðgjafi. Ráðgefandi eineltisteymi er auk þess starfandi við skólann.
Markmið eineltisáætlunar Olweusar:
Megininntak áætlunarinnar er fræðsla. Allt starfsfólk skólans fær reglulega fræðslu um það hvað einelti er, hvernig unnt er að vinna gegn því og hvernig skuli bregðast við því einelti sem upp kann að koma. Allir starfsmenn fá handbók sem unnið er eftir. Foreldrar nemenda fá einnig handbók um einelti. Áætlunin er kynnt á kynningarfundum fyrir foreldra/forráðamanna á haustin.
Starfsreglur Olweusar:
Nemendur fá fræðslu. Á hverju skólaári er rætt við nemendur í öllum árgöngum um skilgreininguna á einelti, birtingarform eineltis og afleiðingar þess fyrir gerendur og þolendur, ófrávíkjanlegar bekkjarrelgur er varða einelti, eineltishringinn, sýnd myndbönd um einelti, haldnir bekkjarfundir o.fl.
Bekkjarreglur Olweusar eru ófrávíkjanlegar og Breiðagerðisskóli ætlast til þess að allir nemendur fylgi þeim reglum:
Eitt tæki Olweusaráætlunarinnar til að greina einelti er spurningakönnun sem lögð er fyrir alla nemendur í 4. - 7. bekk. Frá upphafi innleiðingar í Breiðagerðisskóla árið 2002 hafa fjórar kannanir verið lagðar fyrir nemendur í 4. - 7. bekk til að kortleggja einelti í skólanum. Á innleiðingartímabilinu voru lagðar fyrir tvær kannanir, 2002 og 2003. Þriðja könnunin var síðan lögð fyrir árið 2005 og sú fjórða 2007. Allar kannanirnar voru lagðar fyrir í nóv/des. Niðurstöðurnar eru að finna hér fyrir neðan. Næsta könnun verður væntanlega lögð fyrir í nóv/des 2009.
Meðferð eineltismála í Breiðagerðisskóla skv. aðgerðaráætlun Olweusar: 1. Tilkynning: 2. Upplýsingaöflun: 3. Aðgerðir:
Rétt er að leggja á það áherslu að hvert eineltismál er sérstakt og vinnan við það verður að miðast við eðli málsins hverju sinni.
|













