| Almennar upplýsingar |
|
|
|
| fimmtudagur, 03 júlí 2008 18:37 |
|
Breiðagerðisskóli er fyrir nemendur í 1. - 7. bekk. Hann er í fallegu grónu hverfi í göngufæri við Elliðaárdal. Í skólanum er góður hátíðarsalur, sundlaug, íþróttasalur og stór skólalóð. Breiðagerðisskóli leggur áherslu á að nýta nánasta umhverfi skólans í útikennslu allt skólaárið og þemaverkefni að vori í tengslum við Elliðaárdalinn. Í Breiðagerðisskóla er litið á árganginn sem eina heild og lögð er áhersla á félagslega blöndun innan árgangs og milli árganga. Í skólanum er metnaðarfull list- og verkgreinakennsla og skipar hún stóran sess í starfi skólans. Lögð er áhersla á að hafa verk nemenda sýnileg. |












