Viðburðadagatal

« < September 2010 > »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Komandi viðburðir

mán sep 13 @08:00fh - 05:00eh
Umhverfisdagur

Teljari

Fjöldi heimsókna : 90013
Bókasafn Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 03 júlí 2008 17:49

Húsnæði

Skólasafn Breiðagerðisskóla er í björtu og rúmgóðu húsnæði á fyrstu hæð skólans við aðalanddyri og er 140m².

Safnkostur
Á safninu eru alls um 7500 bækur sem skiptast í skáldsögur og fræðibækur. Á safninu er einnig að finna: hljóðbækur, geisladiska, spil , myndbönd og tímarit. Upplýsingar um öll gögn er að finna í Gegni sem er rafrænt alhliða bókasafnskerfi. Safnið hefur aðgang að Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur.

Starfsemi skólasafnsins
Felst í útlánum og stefnt er að því að allir nemendur fái reglulega tíma á safninu til að læra á safnið, fá sögustundir og leita heimilda. Skólasafninu er meðal annars ætlað það hlutverk að styðja sem best við það sem fer fram í skólanum og aðstoða nemendur og starfsfólk við öflun hverskonar efnis. Safnið er opið daglega frá 8.15 til 14.10 nema á mánudögum, þá er það opið til 12.30.
Umsjón með safninu hefur Guðbjörg Garðarsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur.

Markmið safnsins eru m.a.:
• að leiðbeina nemendur við að nota safnið við nám og til skemmtunar
• að safnkosturinn hafi fræðslu og uppeldislegt gildi og sé aðgengilegur öllum nemendum og starfsfólki skólans
• að hjálpa nemendum við að verða sjálfbjarga við að afla heimilda við skólatengd verkefni og finna þau gögn sem tilheyra safninu
• að örva áhuga nemenda á bókum og lestri
• að þjálfa hlustun og eftirtekt með sögustundum
• Stefnt er að því að allir nemendur fái bókasafnsfræðslu og læri m.a. á flokkunarkerfi safnins Dewey).


Á skólasafninu gilda einfaldar reglur
• Að ganga rólega og hljóðlega um og taka tillit til annarra
• Að fara vel með öll safngögn og setja þau á sinn stað þegar búið er að nota þau

Útlán
• Allir nemendur og starfsmenn skólans eiga lánþegaskírteini sem
eru geymd á bókasafninu
• Nemendur geta fengið lánaðar tvær bækur í senn
• Útlánstími er 2 vikur og ef þörf krefur er hægt að framlengja lán
• Flestar bækur safnsins eru lánaðar heim, orðabækur og önnur uppsláttarrit sem eru sérstaklega merkt eru þó aðeins til afnota í skólanum
• Myndbönd/diskar eru einungis lánuð út til kennara skólans