| Veisla í Hæðargarði |
|
|
|
| fimmtudagur, 27 maí 2010 12:15 |
|
Í vetur hafa nemendur í 7. bekk aðstoðað við tölvukennslu eldri borgara í félagsmiðstöðinni í Hæðargarði. Í þakklætisskyni fyrir framlag krakkanna var þeim boðið í veislu í Hæðargarðinum Ásdís Skúladóttir forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar tók á móti hópnum og hrósaði krökkunum fyrir frábært samstarf í vetur. Við þetta tækifæri fluttu þau Bergdís, Ólafur Arnar og Alexandra ljóð og allur hópurinn söng lag úr söngleiknum Hárinu. Allir skemmtu sér hið besta og þökkum við starfsfólki og íbúum í Hæðargarði fyrir frábærar móttökur og samstarfið í vetur.
|




