Viðburðadagatal

« < September 2010 > »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Komandi viðburðir

mán sep 13 @08:00fh - 05:00eh
Umhverfisdagur

Teljari

Fjöldi heimsókna : 90186
Foreldrasamstarf Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 12 ágúst 2008 11:55
Rannsóknir benda til þess að þegar foreldrar taka þátt í skólastarfi er frammistaða barna þeirra betri, sjálfstraust meira og viðhorf jákvæðara. Fjarvistir og brottfall úr skólum er minna, kennarar ánægðari, foreldrar skilningsríkari og andrúmsloftið betra. Markmið með foreldrasamstarfi er að tryggja gott upplýsingaflæði og samstarf um framfarir barnsins, vinnu þess og líðan og fá vitneskju um barnið frá sjónarhóli foreldranna. Á Menntasviði er starfandi ráðgjafi um samstarf foreldra og skóla. Þar geta foreldrar fengið aðstoð við að finna leiðir til að aðstoða börn sín og ráðgjafinn hefur milligöngu um samskipti við skólayfirvöld ef vandkvæði koma upp. Breiðagerðisskóli notar fjölbreyttar leiðir til að upplýsa foreldra um starfið í skólanum. Kynningar á vetrarstarfi fara fram á haustin. Markmið með þessum fundum er að kynna foreldrum starfið í skólanum og efla þannig tengsl heimilis og skóla. Á þessum fundum skapast líka umræðugrundvöllur um málefni árgangsins og árgangafulltrúar eru valdir úr hópi foreldra.