Viðburðadagatal

« < September 2010 > »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Komandi viðburðir

mán sep 13 @08:00fh - 05:00eh
Umhverfisdagur

Könnun

Ferðaðist þú innanlands í sumar?
 

Teljari

Fjöldi heimsókna : 90003
Gróðursetning Grænu bylgjunnar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 28 maí 2010 09:21

Föstudaginn 21. maí komu börn frá grunnskólum í Reykjavík saman við Gufunesbæinn til að gróðursetja tré undir hatti Grænu bylgjunnar (Green Wave), sem er alþjóðlegt verkefni um líffræðilegan fjölbreytileika. Þennan dag gróðursetja börn um víða veröld tré og mynda þannig Græna bylgju um allan heiminn, en viðburðinum er ætlað að vekja athygli á hugtakinu líffræðilegur fjölbreytileiki og leyfa skólabörnum að hafa áhrif, eitt tré og eitt skref í einu.

Skógræktarfélag Íslands, Yrkjusjóður - sjóður æskunnar til ræktunar landsins - og umhverfisráðuneytið efndu til þessa viðburðar á höfuðborgarsvæðinu.

Kolfinna Pola Grétarsdóttir í 5. bekk og Ísarr Vídalín Hrannarsson í 6. bekk tóku þátt í gróðursetningunni fyrir hönd Breiðagerðisskóla.

 

 
Veisla í Hæðargarði Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 27 maí 2010 12:15

Í vetur hafa nemendur í  7. bekk aðstoðað við tölvukennslu eldri borgara í félagsmiðstöðinni í Hæðargarði. Í þakklætisskyni fyrir framlag krakkanna var þeim  boðið í veislu í Hæðargarðinum

Ásdís Skúladóttir forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar tók á móti hópnum og hrósaði krökkunum fyrir frábært samstarf  í vetur.

Við þetta tækifæri fluttu þau Bergdís, Ólafur Arnar og  Alexandra ljóð og allur hópurinn söng lag úr söngleiknum Hárinu. Allir skemmtu sér hið besta og þökkum við starfsfólki og íbúum í Hæðargarði fyrir frábærar móttökur og samstarfið í vetur.

 

 
Vorferðalag Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 27 maí 2010 09:55

Nemendur í 7. bekk fóru í vorferðalag að Kaldárseli í Hafnarfirði. Ferðin hófst með heimsókn í sundlaugina á Álftanesi.

Þaðan var farið í Kaldársel þar sem gist var eina nótt. Ýmislegt var gert til gamans svo sem gönguferðir, hellaskoðanir, körfuboltamót og fleira.

Nemendur og kennarar skemmtu sér mjög vel. Myndir frá ferðinni eru í myndasafni.

 

 

 

 

 

 
Fræðsla Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 17 maí 2010 13:53

Fræðsla og forvarnir

allir hinir mega það..”

Fræðsla og forvarnir á vegum lögreglu á höfuðborgarsv., velferðasv Reykjavíkurb. og Marita/Samhjálpar

Fræðslufundur fyrir foreldra allra nemenda í 5. og 7.bekk Breiðagerðisskóla verður í sal skólans

miðvikud. 19.maí, kl. 20:00

Á fundinn kemur forvarnarfulltrúi,,Hættu áður en þú byrjar”, Magnús Stefánsson

Hér er um að ræða fræðslufund varðandi forvarnir fyrir forráðamenn nemenda í 5. og7. bekk grunnskóla. Á fundinum verður lögð áhersla á jákvæðar lausnir á málum sem koma upp á unglingsárunum.

Fræðsla verður fyrir nemendur í 5. og  7. bekk að morgni sama dags.  Fræðslan ,,Hættu áður en þú byrjar” fyrir nemendur   fer  þannig fram að sýnd  er mynd sem félagið lét útbúa fyrir þennan aldurshóp. Myndin segir sögu Jóns Jóseps Snæbjörnssonar (Jónsa í Svörtum fötum). Hann hafi ætlaði sér að verða ,,aðaltöffarinn” þegar hann byrjaði í skóla en ekki fallið inn í þann hóp. Þegar vinir hans fóru að neyta áfengis var hann ákveðinn í að byrja ekki að drekka, reykja eða neyta fíkniefna. Að lokinni sýningu myndarinnar verða umræður. Umræðunum stjórnar Magnús Stefánsson, forvarnarfulltrúi,,Hættu áður en þú byrjar”. Fræðslan fyrir nemendur í 5. bekk er tilraunaverkefni í forvörnum. Forvarnarfulltrúinn vinnur með efnið á mismunandi máta í 5. og 7. bekk.

Um kvöldið kl. 20:00 er boðið upp á samskonar fræðslu fyrir foreldra/forráðamenn barna í 5. og 7. bekk. 

,,Við viljum ræða við ykkur, þið verðið að ræða við börnin ykkar”

 

Hvetjum alla foreldra til að mæta!

Námsráðgjafi og umsjónarkennarar 5. og 7. bekkjar i Breiðagerðisskóla

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 3 af 36