|
mánudagur, 07 júní 2010 15:14 |
|
Ágætu foreldrar/forráðamenn
Dagana 7. – 9. júní eru þemadagar. Þessa daga fræðast börnin um Elliðaárdalinn. Þemadagarnir eru skertir skóladagar samkvæmt skóladagatalinu. Nemendur koma með nesti alla dagana og borða hádegismat í skólanum.
Skólatími nemenda er eftirfarandi:
1. bekkur 8:35 - 13:00
2. bekkur 8:35 - 13:00
3. bekkur 8:35 - 13:00
4. bekkur 8:35 – 13:00
Nemendur sem eru í Frístundaheimilinu Sólbúum geta farið þangað strax að loknum skóla dagana 7.- 9. júní.
5. bekkur 8:35 - 12:00
6. bekkur 8:35 - 12:00
7. bekkur 8:35 – 12:00
Skólaslit verða fimmtudaginn 10. júní
Skólatími nemenda er eftirfarandi:
1. bekkur 8:30 - 9:30
2. bekkur 8:30 - 9:30
3. bekkur 9:15 -10:15
4. bekkur 9:15 - 10:15
5. bekkur 10:00 - 11:00
6. bekkur 10:00 - 11:00
Skólaslit hjá 7. bekk eru miðvikudaginn 9. júní kl. 18:00
Skólastjórnendur
|
|
|
Ferð í Náttúrufræðistofu Kópavogs |
|
|
|
|
föstudagur, 04 júní 2010 14:43 |
|
Miðvikudaginn 2. júní, í yndislegu veðri, fóru nemendur í 4. bekk ásamt kennurum í Náttúrufræðistofu Kópavogs. Hópurinn gekk báðar leiðir og var stoppað leiðinni til að borða nesti. Finnur og Haraldur starfsmenn safnsins tóku vel á móti hópnum og fræddu nemendur meðal annars um fiska og hvali. Öllum fannst gaman að leika sér úti í góða veðrinu og sérstaklega var gaman að fara í feluleik milli steinanna á holtinu og leika sér í þeim.

|
|
föstudagur, 04 júní 2010 14:39 |
|
Miðvikudaginn 2. júní héldu nemendur í 7. bekk kaffihúsadag og buðu nemendum í 7. bekk Fossvogsskóla í heimsókn. Þetta var skemmtileg stund sem nemendur og kennarar í þessum tveimur skólum áttu saman. Borðin nánast svignuðu undan veitingum sem nemendur í Breiðó höfðu margir bakað sjálfir. Krakkarnir gátu svo valið um að spila, horfa á video eða vera úti á skólalóð í leikjum.

|
|
þriðjudagur, 01 júní 2010 15:05 |
|
Hekla Helgadóttir frá Karatefélaginu Þórshamri kom í heimsókn til þess að kynna leikjanámskeið sem þau standa fyrir í Þórshamri fyrir börn á aldrinum 6 - 12 ára. Nemendur fengu að reyna sig í íþróttinni með því að kýla og sparka í púða ásamt því að læra ýmsar karateæfingar.
Nemendur fengu miða (auglýsingu) með sér heim sem veitir 10% afslátt af einu námskeiði. Frekari upplýsingar má svo finna á heimasíðu Þórshamars www.karate.is/sumar


|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 2 af 37 |