|
föstudagur, 05 febrúar 2010 11:12 |
|
Brunaæfing var í dag klukkan 10:30. Brunaæfingin var unnin samkvæmt nýrri áætlun um viðbrögð við eldsvoða eða hættuástandi. Æfingin gekk mjög vel. Rýming skólans tók um 3 mínútur þangað til allir voru komnir á söfnunarsvæðið. |
|
|
Heimsókn í Mjólkursamsöluna |
|
|
|
|
mánudagur, 01 febrúar 2010 10:26 |
|
Mánudaginn 25. janúar fóru nemendur í 3. bekk í heimsókn í Mjólkursamsöluna og kynntu sér framleiðslu á mjólkurafurðum. Nemendur fengu að sjá gömul tæki og umbúðir og þáðu veitingar. Þetta var vel heppnuð heimsókn og voru nemendurnir sjálfum sér og öðrum til sóma. Myndir frá ferðinni eru inni á myndasafni. |
|
þriðjudagur, 26 janúar 2010 13:55 |
|
Margrét Örnólfsdóttir kom á skólasafnið fimmtudaginn 21. janúar og las fyrir nemendur í 5. bekk upp úr bók sinni Aþena (ekki höfuðborgin í Grikklandi;)sem kom út fyrir jól. Nemendur höfðu mjög gaman af og gáfu Margréti gott hljóð og var hún mjög ánægð með hópinn. Eftir lesturinn gaf Margrét nemendum kost á að koma með spurningar og endaði sú umræða á því að allir fengu eiginhandaráritun og fengu sumir einnig góð ráð við því hvernig happasælast væri að hefja rithöfundaferilinn.
Myndir frá heimsókn Margrétar eru í myndasafni |
|
þriðjudagur, 05 janúar 2010 14:33 |
|
Myndir af jólaskemmtununum eru komnar í myndasafnið. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 10 af 37 |