Viðburðadagatal

« < September 2010 > »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Komandi viðburðir

mán sep 13 @08:00fh - 05:00eh
Umhverfisdagur

Könnun

Ferðaðist þú innanlands í sumar?
 

Teljari

Fjöldi heimsókna : 90186
100. skóladagurinn Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 15 febrúar 2010 18:30

Í 2. bekk var 100. skóladagurinn haldinn hátíðlegur. Nemendur komu með dót og frjálst nesti. Einnig komu margir með 100- söfnin sín. Þessi uppákoma vakti mikla lukku hjá viðstöddum.

 
Heimsókn á Kringlusafnið Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 12 febrúar 2010 13:04

5. febrúar  fór hluti af  nemendum í 3. bekk í heimsókn á bókasafnið í Kringlunni.

Hildur Baldursdóttir starfsmaður safnsins tók að venju á móti nemendunum og leiddi þá inn í draugaheima. Það var mjög gaman að fylgjast með hversu gagnteknir nemendur voru af upplestri á þjóðsögunni um Guðrúnu og drauginn.

Það er alltaf vandað til verka í þessum árlegu heimsóknum okkar á safnið og greinilegt að Hildur hefur mikla ánægju af starfi sínu.

Myndir frá heimsókninni eru í myndasafni.  Ekki þótti við hæfi að trufla sögustundina með myndatöku þar sem einbeiting nemenda var algjör og áhugi á söguefninu endurspeglaðist í hverju andliti.

 
Öskudagur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 11 febrúar 2010 15:29

Á öskudegi er hefð er fyrir því að nemendur og starfsfólk skólans mæti furðulega til fara. Margt er sér til gamans gert á þessum degi s.s. leikir, bingó, dans, myndbönd o.fl. Við viljum beina því til foreldra að ekki sé nauðsynlegt að kaupa dýra búninga, gömul föt gera sama gagn og vekja alltaf mikla lukku.  Þá er bannað að koma með vopn og önnur ofbeldistæki sem oft fylgja grímubúningum. Undanfarið hefur verið varað við hættu af andlitsmálningu og þess vegna verður ekki boðið upp á andlitsmálningu í skólanum þennan dag eins og undanfarin ár. 

Samkvæmt skóladagatali er öskudagur skertur skóladagur.  Viðvera nemenda í skólanum þennan dag er eftirfarandi:

5. – 7. bekkur er í skólanum frá 8:35 – 11:35

3. – 4. bekkur er í skólanum frá 8:35 -  12:00

1. – 2. bekkur er í skólanum frá 8:35 – 12:20

 

Hádegismatur: Skólinn býður öllum nemendum sínum upp á pylsu og djús í hádeginu.

Nesti: Í tilefni öskudags ætlum við að gera okkur dagamun og mega nemendur hafa með sér frjálst nesti en við biðjum foreldra að stilla sælgæti og gosdrykkjum í hóf.

Öskudagsskemmtun á vegum ÍTR, foreldrafélaga Breiðagerðis- og Fossvogsskóla, Bústaða og Víkings er í Víkinni frá kl. 13 – 15 fyrir nemendur í 1. – 4. bekk.  Strætisvagn fer frá skólanum rétt fyrir kl. 13 og verða nokkrar ferðir frá skólanum og aftur til baka kl. 15.

Þeir nemendur sem eru í frístundaheimilinu Sólbúum geta farið þangað strax að loknum skóla og sér starfsfólk Sólbúa um að fylgja þeim í Víkina og vera með þeim þar.

Þá er öskudagsskemmtun í Bústöðum fyrir nemendur í 5.- 7. bekk frá kl. 17 – 19.

Vetrarfrí  er dagana 18. og 19. febrúar.

Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá mánudaginn 22. febrúar.

 
Lífshlaupið Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 10 febrúar 2010 11:28

Nemendur og starfsmenn Breiðagerðisskóla eru þátttakendur  í Lífshlaupinu. Lífshlaupið er fræðslu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa. Landsmenn eru hvattir til þess að huga að sinni daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, heimilisverkum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag.
Skrá má alla hreyfingu niður en hún þarf að ná minnst 30 mínútum samtals hjá fullorðnum og minnst 60 mínútur samtals hjá börnum og unglingum til að fá dag skráðan. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.
Í hvatningarleiknum eru grunnskólanemendur hvattir til þess að ná að hreyfa sig í 11 daga í samræmi við ráðleggingar um hreyfingu. Í vinnustaðakeppninni er hugmyndafræðin þ.e. flokkaskipting og útreikningar þeir sömu og eru í fyrirtækjakeppninni Hjólað í vinnuna. Þar sem fjöldi þátttakenda er deilt með heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum, nema nú er keppt um fjölda daga og mínútna.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 9 af 37