Viðburðadagatal

« < September 2010 > »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Komandi viðburðir

mán sep 13 @08:00fh - 05:00eh
Umhverfisdagur

Könnun

Ferðaðist þú innanlands í sumar?
 

Teljari

Fjöldi heimsókna : 90185
Nemendafélag Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 04 mars 2010 09:48

Sjötti fundur nemendafélagsins var haldinn fimmtudaginn 25. febrúar. Þar ræddu aðalfulltrúar 5., 6. og 7. bekkar m.a. um væntanlega þemadaga í skólanum. Það voru margar, skemmtilegar og spennandi hugmyndir sem nemendafulltrúarnir lögðu til varðandi þemadagana og verða þær allar teknar til greina og skoðunar.

Allir nemendafulltrúarnir (bæði aðal- og varamenn) hafa verið mjög áhugasamir og duglegir í vetur. Auk hefðbundinna funda hafa fulltrúar þeirra mætt á alla fundi í skólaráði í vetur. Þann 1. febrúar s.l. fóru tveir fulltrúar 7. bekkjar, þær Hrafnhildur Hekla og Ragnheiður Silja á fund um skólastarf sem haldinn var í Laugalækjaskóla á vegum Menntasviðs. Þar stóðu stelpurnar sig með miklum sóma. Á fundinum lýstu þær ánægju með kennsluhætti í skólanum sínum, sögðu frá hve þróunarverkefnið Orð af orði hefði eflt lestraráhuga nemenda í 7. bekk. Einnig lýstu þær áhuga 7. bekkinga í Breiðagerðisskóla á því að eiga meiri samskipti við jafnaldra í Fossvogsskóla, t.d. bjóða þeim í heimsókn eða halda sameiginlegt diskó.

 

 
Bekkjarskemmtun hjá 2. bekk Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 25 febrúar 2010 13:46
Þann 16. febrúar var bekkjarskemmtun í 2. bekk. Nemendur fóru með þulu og sungu fyrir viðstadda. Síðan var farið í spurningakeppni með spurningum sem nemendur höfðu samið. Börnin stóðu sig með mikilli prýði og skemmtu viðstaddir sér mjög vel. Myndir má finna í myndasafni.
 
Öskudagur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 17 febrúar 2010 13:24
Myndir frá öskudagshátíðinni eru komnar í myndasafnið
 
Þorrablót Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 16 febrúar 2010 09:26

Hið árlega þorrablót sem haldið er með nemendum, foreldrum og kennurum 7. bekkjar var haldið mánudaginn 8. febrúar s.l.   Nemendur fluttu minni kvenna og karla,  þorralögin voru sungin og dansaður skottís undir stjórn Hólmfríðar Þorvaldsdóttur danskennara.  Allir skemmtu sér vel og þorramatnum voru gerð góð skil.   Myndir frá skemmtuninni eru í myndasafni 7. bekkjar.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 8 af 37