Viðburðadagatal

« < September 2010 > »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Komandi viðburðir

mán sep 13 @08:00fh - 05:00eh
Umhverfisdagur

Könnun

Ferðaðist þú innanlands í sumar?
 

Teljari

Fjöldi heimsókna : 90013
Stóra upplestrarkeppnin Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 11 mars 2010 14:04

Undanúrslit Stóru upplestrarkeppninnar fór fram á sal skólans miðvikudaginn 10. mars s.l.   Tólf nemendur höfðu verið valin úr hópi nemenda 7. bekkjar til að taka þátt í undanúrslitunum.  En það voru Lína Dóra, Reynir Logi,  Hrafnhildur Hekla, Einar Baldvin,  Sigurður,  Alexandra Diljá, Bergdís Helga,  Martha Guðrún,  Ólafur Arnar, Jakob, Snædís og Kristjana María.  Allir keppendur lásu kafla úr bók eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur en áður en þeir lásu kynnti Jón Snævar  höfundinn. Keppendur fluttu einnig ljóð að eigin vali.  Allir stóðu sig frábærlega og erfitt var fyrir dómnefnd að velja þá tvo þátttakendur sem munu keppa fyrir hönd skólans í Stóru upplestrarkeppninni sem fram fer 23. mars n.k.   Nemendur sem að lokum voru valdir eru Alexandra Diljá, Snædís og til vara er Hrafnhildur Hekla.  Keppendur fengu í viðurkenningu  áritaða bókagjöf frá skólanum.  Myndir frá undanúrslitunum eru í myndasafni. 

 
Skólahljómsveit Austurbæjar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 09 mars 2010 15:22

Hjá Skólahljómsveit Austurbæjar hafa losnað nokkur pláss í slagverksnám.

Nemendum í 3. - 7. bekk  Breiðagerðisskóla stendur til boða að sækja um. Öll slagverkskennsla fer fram í Laugarnesskóla, kennari er Ólafur Hólm. Vinsamlegast hafið samband við Vilborgu í síma: 664-8404 eða í tölvupósti: Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist.

 
Útimyndlist Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 08 mars 2010 09:34

1. mars fóru nemendur 1. bekkjar í útikennslu í myndmennt. Kennaranemarnir, Atli og Unnur ásamt Kristínu myndmenntakennara unnu saman að undirbúningi og skipulagningu útikennslunnar. Verkefnið sem lagt var fyrir börnin fólst í því að skoða tré að vetri til, teikna það og mála. Hópurinn var heppinn með veður því þessi dagur var bjartur og fallegur. Myndir frá útimyndlistinni eru í myndasafni.

 
Nemendafélag Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 04 mars 2010 09:48

Sjötti fundur nemendafélagsins var haldinn fimmtudaginn 25. febrúar. Þar ræddu aðalfulltrúar 5., 6. og 7. bekkar m.a. um væntanlega þemadaga í skólanum. Það voru margar, skemmtilegar og spennandi hugmyndir sem nemendafulltrúarnir lögðu til varðandi þemadagana og verða þær allar teknar til greina og skoðunar.

Allir nemendafulltrúarnir (bæði aðal- og varamenn) hafa verið mjög áhugasamir og duglegir í vetur. Auk hefðbundinna funda hafa fulltrúar þeirra mætt á alla fundi í skólaráði í vetur. Þann 1. febrúar s.l. fóru tveir fulltrúar 7. bekkjar, þær Hrafnhildur Hekla og Ragnheiður Silja á fund um skólastarf sem haldinn var í Laugalækjaskóla á vegum Menntasviðs. Þar stóðu stelpurnar sig með miklum sóma. Á fundinum lýstu þær ánægju með kennsluhætti í skólanum sínum, sögðu frá hve þróunarverkefnið Orð af orði hefði eflt lestraráhuga nemenda í 7. bekk. Einnig lýstu þær áhuga 7. bekkinga í Breiðagerðisskóla á því að eiga meiri samskipti við jafnaldra í Fossvogsskóla, t.d. bjóða þeim í heimsókn eða halda sameiginlegt diskó.

 

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 7 af 36