Viðburðadagatal

« < September 2010 > »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Komandi viðburðir

mán sep 13 @08:00fh - 05:00eh
Umhverfisdagur

Könnun

Ferðaðist þú innanlands í sumar?
 

Teljari

Fjöldi heimsókna : 90010
Flatarmyndir 7. bekk Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 23 mars 2010 09:56

Nemendur í  7. bekk hafa verið að vinna hönnunarverkefni í stærðfræði.  Þeir fengu fyrirmæli um að hanna skemmtigarð þar sem væru kaffihús, leikvöllur, tjarnir, göngustígar og fleira.  Verkefnið er hluti af lokaprófseinkunn þeirra og þurfa þeir að skila teikningu af garðinum ásamt útreikningum.  Nemendurnir hafa verið niðursokknir í þessa vinnu í stærðfræðitímunum og áhugi þeirra er mikill.  Myndir af vinnunni eru myndasafni.

 

 
Þemadagar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 18 mars 2010 15:41
Í næstu viku verða þemadagar í Breiðagerðisskóla. Allar upplýsingar um þemadagana má finna á krækjunni hér fyrir ofan.
 
Heildarmatsskýrsla Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 18 mars 2010 15:34

Heildarmat á skólastarfi á vegum Menntasviðs Reykjavíkur  fer fram í 6-7 skólum á þessu skólaári.  Heildarmatið fór fram í Breiðagerðisskóla fyrir áramót.  Markmið matsins er að efla skólastarf í borginni og veita yfirsýn yfir sterka og veika þætti í framkvæmd menntastefnu borgarinnar. 

                Matinu er ætlað:

Að aðstoða skóla í ljósi eigin sjálfsmats til að efla skólastarfið og styrkja innviði skólans

                               Styrkja skólabrag og búa til samhljóm í skólanum

                               Gera góðan skóla betri með markvissri hvatningu í starfi.

 Nú hefur matshópur lokið störfum.  Heildarmatsskýrsla er nú komin á heimasíðu skólans. Matsskýrslan er vistuð undir flipanum til vinstri á síðunni undir liðnum :  skólinn. 

Starfsfólk skólans má vera stolt af sínu starfi, sem er fjölbreytt. Í skólastarfi er alltaf að mörgu að hyggja. 

Starfsfólk skólans mun á næstunni skoða niðurstöður matsins og vinna úr niðurstöðum matsins nýja umbótaáætlun fyrir Breiðagerðisskóla. Foreldrar eru hvattir til að kynna sér niðurstöður skýrslunnar.   

 
Fiskikóngurinn Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 12 mars 2010 12:40

Fimmtudaginn 11. mars fóru nemendur í  2. bekk ásamt kennurum í heimsókn í fiskbúðina Fiskikónginn. Nemendur stóðu sig mjög vel og fengu  frábærar móttökur. Þeir fræddust um búðina og fengu að skoða hinar ýmsu fisktegundir. Þetta var bæði fróðleg og skemmtileg ferð. Myndir af ferðinni eru í myndasafni.

 

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 6 af 36