|
miðvikudagur, 21 apríl 2010 15:36 |
|
Í dag, síðasta vetradag, var dagskrá í sal í tilefni Barnamenningarhátíðar Reykjavíkur. Flestir nemendur skólans tóku þátt í dagskránni með söng, upplestri og hljóðfæraleik. Ánægjulegt var að sjá hve margir foreldrar gátu tekið þátt í hátíðinni. Starfsmenn skólans voru stoltir af framlagi barnanna. Þetta er í fyrsta skipti sem Reykjavíkurborg stendur fyrir barnamenningarhátíð og vonandi verður þetta að árlegri hefð. Nemendur og kennarar þeirra eiga hrós skilið fyrir fallega og skemmtilega dagskrá. Starfsmenn skólans óska nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars.

|
|
|
Menningardagskrá Í Breiðagerðisskóla |
|
|
|
|
föstudagur, 16 apríl 2010 13:05 |
|

Miðvikudaginn 21. apríl 2010 frá klukkan 8:35 - 11:10 verður samfelld dagskrá í hátíðarsal skólans þar sem nemendur koma fram í upplestri, söng og hljóðfæraleik. Einnig munu gestir úr sönghóp í félagsstarfi aldraðra í Hæðargarði taka lagið með okkur. Mynlistarsýning nemenda verður í anddyri skólans og þar verður einnig heitt á könnunni.
Allir velkomnir.
Nemendur í: 1.-2. bekk kl. 8:35 - 9:15 3. - 4. bekk kl. 9:15 - 9:55 6. - 7. bekk kl. 10:00 - 10:40 5. bekk kl. 10:40 - 11:10 ásamt sönghópi Hæðgargarðs
Vonumst til að sjá sem flesta |
|
föstudagur, 16 apríl 2010 12:42 |
|

Skólahljómsveit Austurbæjar, Kór Vogaskóla,
Kórskóli Langholtskirkju og Graduale Futuri halda tónleika í
Langholtskirkju
Þriðjudag 20. apríl kl. 18.00
Stjórnendir kóranna eru Ágústa Jónsdóttir, Rósa Jóhannsdóttir og Þóra Björnsdóttir.
Stjórnandi Skólahljómsveitarinnar er Vilborg Jónsdóttir.
Aðgangur er ókeypis. |
|
föstudagur, 26 mars 2010 14:22 |
|
Í dag var opið hús í skólanum í lok vel heppnaðra þemadaga. Ánægjulegt var að sjá hve margir foreldrar sáu sér fært að mæta. Hópur nemenda sýndi dans sem þeir lærðu í þemavikunni og allir árgangar fóru í leiki á skólalóðinni. Einn árgangur var svo heppinn að fá að prófa nýju útileikföngin sem nemendur bjuggu sjálfir til. Þemadagarnir voru sérstaklega skemmtilegir og var gaman að sjá hve eldri nemendur voru hjálpsamir og umhyggjusamir gagnvart þeim yngri.
Starfsfólk Breiðagerðisskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra páska. Skólinn hefst að nýju miðvikudaginn 7. apríl samkvæmt stundaskrá. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 5 af 37 |