|
Bangsavika á skólasafninu 28. til 31. október |
|
|
|
|
þriðjudagur, 04 nóvember 2008 14:27 |
|
Bangsar og önnur mjúkdýr hópuðust á skólasafnið þessa viku. Föstudaginn 31. október endaði vikan á því að tillögukassi með bangsanöfnum frá nemendum var opnaður. Nokkrir kennarar tóku að sér það vandasama verk að velja nöfn úr um tvö hundruð tillögum. Í þetta sinn fengu nöfnin FRÓÐI, sem Una Mist í öðrum bekk kom með og LUBBI sem Kristjana María í sjötta bekk kom með, flest atkvæði. Í verðlaun fengu þær Una Mist og Kristjana bókasafnsbangsana Fróða og Lubba. Um leið og ég þakka þeim fyrir þessi fínu nöfn, óska ég þeim innilega til hamingju með bangsana sína.
Myndir frá þessari viku eru í: myndasafn/bókasafn
Kv. Guðbjörg G. |
|
|
föstudagur, 31 október 2008 14:19 |
|
Þann 27. október var Alþjóðlegur Bangsadagur, í tilefni hans var náttfata og bangsadagur hjá 5.-7. bekk. Nemendur mættu í náttfötum og með bangsa. Í tilefni dagsins var horft á DVD mynd og kúrt með böngsunum sínum. Það má sjá myndir á myndasafninu undir miðstig. |
|
Evrópski tungumáladagurinn 26. september |
|
|
|
|
föstudagur, 31 október 2008 12:47 |
|
Nemendur með annað móðurmál en íslensku eða eru tvítyngdir komu saman í sal ásamt gestum . Atburðurinn hófst á því að nemendur í fyrsta bekk sungu lög á nokkrum tungumálum undir stjórn Sigrúnar Erlu tónmenntakennara. Síðan lásu nemendur upp setninguna: Við höfum hljótt á skólasafninu á móðurmáli eða máli númer tvö og settu fána á landið sitt á landakorti. Hlutir frá nokkrum löndum voru til sýnis.
Gestir nemenda voru að þessu sinni skólavinir sem er vinaverkefni sem er í gangi í skólanum og kallast Vinabönd.
Setningarnar tvær: Velkomin á skólasafnið og Við höfum hljótt á skólasafninu eru nú til á um 16 tungumálum og þær verða settar upp á safninu.
Sjá myndir undir: myndasafn/bókasafn.
Kv. Guðbjörg G. |
|
fimmtudagur, 23 október 2008 19:53 |
|
Komin er ný heimasíða hjá Breiðagerðisskóla. Umsjónamaður heimasíðunnar er María Helen. Ef þið hafið skemmtilegar hugmyndir um það sem betur mætti fara þá hafið samband við vefstjóra. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 31 32 33 34 35 36 37 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 36 af 37 |