Viðburðadagatal

« < September 2010 > »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Komandi viðburðir

mán sep 13 @08:00fh - 05:00eh
Umhverfisdagur

Könnun

Ferðaðist þú innanlands í sumar?
 

Teljari

Fjöldi heimsókna : 90186
Fræðsla Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 17 maí 2010 13:53

Fræðsla og forvarnir

allir hinir mega það..”

Fræðsla og forvarnir á vegum lögreglu á höfuðborgarsv., velferðasv Reykjavíkurb. og Marita/Samhjálpar

Fræðslufundur fyrir foreldra allra nemenda í 5. og 7.bekk Breiðagerðisskóla verður í sal skólans

miðvikud. 19.maí, kl. 20:00

Á fundinn kemur forvarnarfulltrúi,,Hættu áður en þú byrjar”, Magnús Stefánsson

Hér er um að ræða fræðslufund varðandi forvarnir fyrir forráðamenn nemenda í 5. og7. bekk grunnskóla. Á fundinum verður lögð áhersla á jákvæðar lausnir á málum sem koma upp á unglingsárunum.

Fræðsla verður fyrir nemendur í 5. og  7. bekk að morgni sama dags.  Fræðslan ,,Hættu áður en þú byrjar” fyrir nemendur   fer  þannig fram að sýnd  er mynd sem félagið lét útbúa fyrir þennan aldurshóp. Myndin segir sögu Jóns Jóseps Snæbjörnssonar (Jónsa í Svörtum fötum). Hann hafi ætlaði sér að verða ,,aðaltöffarinn” þegar hann byrjaði í skóla en ekki fallið inn í þann hóp. Þegar vinir hans fóru að neyta áfengis var hann ákveðinn í að byrja ekki að drekka, reykja eða neyta fíkniefna. Að lokinni sýningu myndarinnar verða umræður. Umræðunum stjórnar Magnús Stefánsson, forvarnarfulltrúi,,Hættu áður en þú byrjar”. Fræðslan fyrir nemendur í 5. bekk er tilraunaverkefni í forvörnum. Forvarnarfulltrúinn vinnur með efnið á mismunandi máta í 5. og 7. bekk.

Um kvöldið kl. 20:00 er boðið upp á samskonar fræðslu fyrir foreldra/forráðamenn barna í 5. og 7. bekk. 

,,Við viljum ræða við ykkur, þið verðið að ræða við börnin ykkar”

 

Hvetjum alla foreldra til að mæta!

Námsráðgjafi og umsjónarkennarar 5. og 7. bekkjar i Breiðagerðisskóla

 
Bókaverðlaun barnanna 2010 Núll núll 9 og Stórskemmtilega stelpubókin Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 04 maí 2010 13:21

Borgarbókasafn veitir verðlaunin árlega fyrir tvær bækur, aðra frumsamda og hina þýdda. Nemendum grunnskólanna gefst kostur á að taka þátt í atkvæðagreiðslu um bækurnar. Þegar atkvæði nemenda í Breiðagerðisskóla voru afhent var tekið eftir því hversu margir tóku þátt. Verðlaunin hlutu Þorgrímur Þráinsson fyrir bókina Núll núll 9 og Halla Sverrisdóttir fyrir þýðingu sína á Stórskemmtilegu stelpubókinni.  Dregið var úr nöfnum nemenda sem tóku þátt í kosningunni og sex heppnir þátttakendur hlutu bækur í viðurkenningarskyni fyrir þátttökuna.

 

 
5. bekkur í bæjarferð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 03 maí 2010 12:07

Þriðjudaginn 13. apríl fóru nemendur í  5.bekk ásamt kennurum í menningarferð á Þjóðminjasafnið og í miðbæinn.  Á Þjóðminjasafninu var sá hluti safnsins sem tilheyrir landnámi Íslands skoðaður og  fengu nemendur að klæðast  búningum í anda landnámsmanna.

  Þegar heimsókninni á Þjóðminjasafnið var lokið rölti hópurinn í  miðbæinn þar sem komið var við á kaffihúsi og allir fengu kakó og kleinu.  Síðan var gengið um miðbæinn og helstu byggingar skoðaðar. Sérstaklega voru þær byggingar skoðaðar sem nemendur höfðu áður séð á gömlum myndum og fræðst um í skólanum.  Þetta var hin skemmtilegasta ferð. 

 
Barnamenning Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 26 apríl 2010 12:17

Nemendur í 4. bekk tóku þátt í setningu Barnamenningarhátíðar Reykjavíkurborgar mánudaginn 19. apríl. Öllum nemendum 4. bekkjar í grunnskólum Reykjavíkur var boðið að taka þátt í skrúðgöngu. Skólunum voru úthlutaðir ákveðnir litir og í hlut Breiðagerðisskóla kom silfur. Því var ákveðið að hylja derhúfur með álpappír og búnir til silfursprotar (veifur). Gengið var yfir göngubrúna sem liggur yfir Hringbraut og síðan inn í Hljómskálagarðinn.

  

Í göngunni voru margar furðuverur sem skemmtu og stríddu krökkunum.  Í  Hljómskálagarðinum fengu allir safa og kleinu í hressingu og skemmtiatriði á sviði. Mesta lukku vakti Fíasól og einnig þegar menntamálaráðherra og borgarstjóri slepptu tveimur dúfum og settu þar með hátíðina. Myndir má finna í myndasafni.

 

 

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 4 af 37